iPhone 14 Pro efri hátalari
Áður en þú byrjar
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:
Verkfæri
6,1 tommu viðgerðabakki
ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)
JCIS-biti
Nítríl- eða lólausir hanskar
Nælonkanni (svart prik)
Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)
Varúð
Til að forðast að skemma linsurnar skaltu ekki snerta TrueDepth-myndavélina eða nálæga hluta.
Forðastu fjöðrina á myndavélarhlífinni.
Fjarlæging
Settu hulstrið í viðgerðabakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.
Settu á þig hanskana til að koma í veg fyrir að myndavélarlinsurnar óhreinkist.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bitann til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar tvær úr efri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.
Notaðu svarta prikið til að halla upp efri hátalaranum upp eins og sýnt er. Taktu síðan efri hátalarann úr hulstrinu.
Samsetning
Settu efri hátalarann í hulstrið.
Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bita til að setja tvær nýjar stjörnuskrúfur (923-08159) í efri hátalarann.
Settu eftirfarandi hluta aftur á til að ljúka samsetningunni: