Mac mini (2023 með M2) Botnhulstur
Áður en hafist er handa
Verkfæri
Nemi úr næloni (svartur teinn)

Losun
Stingið slétta endanum á svarta teininum á milli botnhulstursins og hússins(1). Ýtið síðan á svarta teininn til að lyfta botnhulstrinu örlítið (2).
Rennið svarta teininum um brún botnhulstursins. Teljið þrjá smelli þar sem botnhulstrið losnar frá skrúfunum þremur á loftnetsplötunni.
Lyftið botnhulstrinu af loftnetsplötunni.
Samsetning
Setjið botnhulstrið yfir loftnetsplötuna. Látið klemmurnar þrjár neðan á botnhulstrinu flútta við þrjár T6 skrúfur á loftnetsplötunni.
Þrýstið á botnhulstrið þar til þrjár klemmur á botnhulstrinu smellast á þrjár T6 skrúfur.
Varúð
Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Kerfisstilling er nauðsynleg ef nýtt móðurborð var sett í.
Ef skipt var um móðurborð mun tölvan ræsa sig í greiningarham þar til kerfisstillingu er lokið.